Á 93. ársþingi USÚ, sem fram fór í Stekkhól, félagsheimili Hestamannafélagsins Hornfirðings, 7. apríl sl., var íþróttamaður USÚ fyrir árið 2025 heiðraður. Einnig fengu fimm ungir iðkendur hvatningarverðlaun.
Íþróttamaður USÚ 2025 er Þorsteinn Roy Jóhannsson
Þorsteinn gat ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna, en hann sendi okkur þessar tvær myndir af sér til birtingar hér á síðunni. Svanhvít Helga, systir Þorsteins, tók við verðlaununum fyrir hans hönd.
Eftirfarandi texti var lesinn upp við útnefninguna:
Í dag heiðrum við mann sem ákvað að hlaupa – ekki bara hraðar en flestir – heldur líka lengra og hærra… upp um fjöll og firnindi.
Hann hefur átt einstakt ár og skipað sér í fremstu röð íslenskra hlaupara. Varð annar á Íslandsmeistaramótinu í 10 km götuhlaupi, aðeins sekúndu frá sigri – og tími hans er jafnframt Íslandsmet í aldursflokki 30–34 ára. En auk þess setti hann Úlfljótsmet bæði í 5 og 10 km götuhlaupum.
Á sama tíma hefur hann sannað styrk sinn utan vegar, þar sem hann var valinn utanvegahlaupari ársins 2025 eftir sitt besta tímabil til þessa.
Sérgreinin eru fjallahlaup – og þá sérstaklega niðurhlaupið sjálft. Þar nýtur hann sín best, á fullri siglingu niður brattar fjallshlíðar. Hann kemur úr Öræfasveit og eflaust skilar sér reynslan úr fjalla-smalamennskum, að hlaupa í fjallshlíðum á eftir rollum– reynsla og seigla sem ekki er kennd í æfingaprógrömmum, en á sinn þátt í framúrskarandi árangri.
Hann var einnig valinn í landslið Íslands og keppti á heimsmeistaramóti í utanvegahlaupum sem haldið var í Canfranc á Spáni. Þar kom hann fyrstur Íslendinga í mark í 45km hlaupi um hlýðar Pýreneafjallanna eftir rúmlega 5 og hálfs klukkutíma hlaup.
Það sem einkennir íþróttamann USÚ 2025 er ekki aðeins árangurinn, heldur viðhorfið. Hann leggur áherslu á gleði og ástríðu sem skilar stöðugri framþróun – gildi sem endurspegla kjarnann í íþróttastarfinu, eða svo ég noti orð hans sjálfs, “sá vinnur sem mest hefur gaman”.
Hann er fyrirmynd, bæði innan og utan brautar, og sannur fulltrúi þeirrar íþróttahreyfingar sem við stöndum fyrir.
Fyrir framúrskarandi árangur, dugnað og elju er Þorsteinn Roy Jóhannsson úr Ungmennafélagi Öræfa, Íþróttamaður USÚ árið 2025.
Þess má til gamans geta að þetta er í fyrsta skipti sem íþróttamaður úr Ungmennafélagi Öræfa hlýtur þessa nafnbót.
Eftirtaldir hlutu hvatningarverðlaun USÚ fyrir árið 2025
Alex Leví Gunnarsson
Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ og Alex Leví Gunnarsson (mynd: JÍI)
Alex Leví er efnilegur knattspyrnu- og körfuboltaleikmaður. Hann var valinn í úrtaksæfingar fyrir U16 KSÍ á árinu 2025 og einnig í úrtaksæfingar fyrir U15 KKÍ á árinu 2024.
Alex er þrautseigur, metnaðarfullur og fjölhæfur vinstri fótar/handar leikmaður. Hann er lykilmaður í liði 10. flokks í körfubolta sem og sameiginlegu liði Austurlands í 3. flokki á síðasta tímabili í knattspyrnu. Hann tók einnig sínu fyrstu skref með meistaraflokki á síðasta tímabili og æfir nú grimmt með þeim fyrir komandi tímabil.
Íþróttamennska Alex Leví fer ekki framhjá neinum og verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni.
Fanney Rut Guðmundsdóttir
Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ og Fanney Rut Guðmundsdóttir. (mynd: JÍI)
Fanney Rut er traustur og metnaðarfullur leikmaður sem hefur staðið sig vel með liði Sindra síðustu ár. Á síðasta tímabili spilaði hún 16 leiki með meistaraflokki og sýndi mikinn stöðugleika í sínum leik. Fanney getur leyst af bæði á miðju og vörn, er fylgin sér á vellinum, sterk í návígi og örugg á boltanum.
Fanney er jákvæð í hóp og leggur sitt af mörkum til liðsins. Framlag hennar átti þátt í góðum árangri Sindra á síðasta tímabili, þegar liðið náði sínum besta árangri í langan tíma með 5. sæti í 2. deild.
Jóhann Frans Ólason
Jóhann Frans gat ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna, en Guðrún Ása Jóhannsdóttir, móðir hans, tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd. Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ, er með henni á myndinni. (mynd: JÍI)
Jóhann hefur alist upp hjá UMF Sindra, þar sem hann hefur sýnt mikinn metnað, dugnað og ástríðu fyrir íþróttinni. Með elju og staðfestu hefur hann þróast jafnt og þétt sem leikmaður og verið fyrirmynd bæði innan vallar sem utan.
Nú hefur Jóhann stigið stórt skref á sinni knattspyrnuferð með því að ganga til liðs við UMF Selfoss. Það er spennandi áskorun og tækifæri sem án efa mun hjálpa honum að vaxa enn frekar, bæði sem leikmaður og einstaklingur.
Við erum stolt af því sem hann hefur áorkað hingað til og hlökkum til að fylgjast með honum ná enn lengra í framtíðinni.
Kristján Reynir Ívarsson
Kristján Reynir gat ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna, en Jóna Benný Kristjánsdóttir, móðursystir hans, tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd. Meðfylgjandi mynd var tekin af honum með viðurkenninguna daginn eftir. (mynd: ABK)
Kristján Reynir er ungur golfari hjá Golfklúbbi Hornafjarðar. Hann býr yfir miklum hæfileikum og löngun til þess að bæta sig. Hann hefur mikinn metnað fyrir golfinu og er að taka góð skref á sínum ferli og er nú þegar kominn undir 10 í forgjöf. Vinnusemi hans og háttsemi er til fyrirmyndar fyrir unga golfara og með þessu áframhaldi verður framtíð hans björt á golfvellinum.
Sóley Guðmundsdóttir
Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ, og Sóley Guðmundsdóttir. (mynd: JÍI)
Sóley er ungur og efnilegur leikmaður sem hefur þegar stigið sín fyrstu skref með meistaraflokki og spilaði sinn fyrsta leik á síðasta tímabili. Hún hefur einnig verið hluti af sameiginlegu liði Austurlands í 4. flokki kvenna, þar sem liðið stóð sig með prýði á landsvísu.
Sóley er hröð, áræðin og hörð af sér á vellinum. Hún getur leyst margar stöður en spilar oftast sem hægri bakvörður, þar sem styrkleikar hennar nýtast vel bæði varnar- og sóknarlega.
Sóley var valin í hæfileikamótun N1 og KSÍ á árinu 2025 og er ljóst að hér er spennandi leikmaður á ferð sem á framtíðina fyrir sér.
Stjórn USÚ óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með viðurkenningarnar.
Ársþing USÚ, það 93. í röðinni, fór fram í Stekkhól, félagsheimili Hestamannafélagsins Hornfirðings, þriðjudaginn 7. apríl sl. Þingið var ágætlega sótt, en alls mættu 34 fulltrúar af þeim 44 sem rétt áttu á þingsetu. Fulltrúar frá sjö af níu félögum innan USÚ sóttu þingið.
Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ, setti þingið og bauð þingfulltrúa velkomna. Ragnheiður Högnadóttir, sem situr í stjórn UMFÍ, stýrði þinginu líkt og í fyrra og Margrét Kristinsdóttir, ritari USÚ, ritaði þinggerð.
Þingssetning – (mynd: SÓJ)
Starfsemi USÚ var með nokkuð venjubundnum hætti á árinu 2025. USÚ sendi fulltrúa á öll þau þing og fundi sem ætlast er til, t.d. vorfund UMFÍ í maí, íþróttaþing ÍSÍ í maí, sambandsþing UMFÍ í október og formannafund ÍSÍ í nóvember. Í tengslum við a.m.k. tvo þessa viðburði náðust góð samtöl við forsvarsmenn annarra íþróttahéraða, og nú er t.d. kominn upp talsverður áhugi á að endurvekja sýslumót sem haldin voru milli USÚ og USVS hér á árum áður. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeim hugmyndum reiðir af. Nánar má lesa um starfið 2025 í skýrslu stjórnar í ársriti USÚ, þar sem jafnframt má kynna sér ársreikning 2025 og starfsskýrslur flestra aðildarfélaga.
Ágætis mæting var á þingið. (mynd: SÓJ)
Enginn gestur frá ÍSÍ átti heimangengt á þingið, en Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, sendi kveðju á myndbandsformi. Þar flutti hann kveðju frá framkvæmdastjórn og starfsfólki ÍSÍ. Í ræðu sinni fjallaði hann m.a. um kraftinn sem býr á sambandssvæði USÚ, m.a. hjá Sindra og Vísi. Hann fjallaði einnig um ýmsar áskoranir varðandi æfingar og keppni, m.a. hvað varðar vegalengdir sem yfir þarf að fara. Hann fjallaði einnig um stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem ÍSÍ og UMFÍ vinna nú saman að, svo eitthvað sé nefnt.
Ragnheiður Högnadóttir, sem eins og áður segir situr í stjórn UMFÍ, flutti kveðju frá stjórn og starfsfólki UMFÍ. Hún fjallaði m.a. einnig um stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ, mikilvægi fyrirtækjanna Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna, svæðisstöðvar íþróttahéraðanna og þá sjóði sem hægt er að sækja styrki í frá UMFÍ.
Að lokum greindi Ragnheiður frá því að framkvæmdastjórn UMFÍ hefði ákveðið að heiðra Sigurð Óskar Jónsson, fráfarandi gjaldkera USÚ til 15 ára, með gullmerki UMFÍ fyrir sín störf í þágu ungmennafélagshreyfingarinnar. Eftir því sem næst verður komist er þetta í fyrsta skipti sem einhver sem starfar innan USÚ hlýtur gullmerki UMFÍ.
Tillaga 1 var hefðbundin tillaga um hvatningu til félaga að mæta á viðburði hjá UMFÍ og ÍSÍ.
Tillaga 2 fólst í því að skattur aðildarfélaga, skv. 6. gr. laga USÚ, verði 0 kr. árið 2026.
Tillaga 3 var smávægileg lagabreytingartillaga þess efnis að ársþing USÚ skuli haldið eigi síðar en 15. apríl ár hvert, en áður hafði verið miðað við lok marsmánaðar.
Tillaga 4 var viðbót við eina grein í reglum um skiptingu lottótekna, þess efnis að ef félag hefur einhverra hluta vegna ekki náð að halda aðalfund sinn áður en kemur til USÚ þings, hafi það þá einn mánuð til þess eftir þing, án þess að lottótekjur skerðist, þó með þeim varnagla að félagið láti stjórn USÚ vita fyrir þingið.
Tillaga 5 var svo fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
Allar tillögurnar voru samþykktar samhljóða og hægt að skoða uppfærð lög og lottóreglugerð hér á síðunni. Tillögurnar eins og þær komu inn á þingið má sjá í síðustu frétt hér á síðunni.
Þegar kom að kosningum, lá fyrir að breytingar yrðu á stjórn USÚ. Bjarni Malmquist Jónsson, formaður, og Margrét Kristinsdóttir, ritari, gáfu kost á sér áfram, en það gerði Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri, ekki. Í hans stað var kosin Sunna Jónsdóttir, Sindra. Að þingi loknu var haldinn stuttur stjórnarfundur, þar sem ákveðið var að Bjarni yrði áfram formaður USÚ, Margrét yrði gjaldkeri og Sunna tæki við ritarastöðunni. Því miður náðist ekki mynd af nýrri stjórn, en hún lofar að bæta úr því við tækifæri.
Engar breytingar urðu á kjörnum varamönnum. Hannes Halldórsson, Mána, og Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Sindra, gáfu kost á sér áfram og hlutu kosningu. Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnar Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir og Halldóra Katrín Guðmundsdóttir. Þær voru einnig kosnar í kjörnefnd fyrir næsta þing, auk Halldóru Bergljótar Jónsdóttur. Kristján Sigurður Guðnason er til vara.
Undir liðnum önnur mál kvaddi Bjarni Malmquist sér hljóðs, fyrst með Vísishúfuna, þar sem hann viðraði hugmyndir um að sækja um að halda Landsmót UMFÍ 50+. Þá tók hann niður húfuna og fjallaði um möguleika USÚ til að halda aftur unglingalandsmót UMFÍ, en þá umræðu þarf að taka í kringum hugmyndir Sveitarfélagsins Hornafjarðar um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Höfn.
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir og Rebekka Rán Egilsdóttir, svæðisfulltrúar á Austurlandi, sögðu frá sínum störfum og hvöttu félögin til að leita til sín ef þær gætu mögulega hjálpað þeim með eitthvað.
Að lokum þakkaði Sigurður Óskar Jónsson, fráfarandi gjaldkeri fyrir sig. Hann væri nú að hverfa úr stjórn eftir 15 ára setu. Þetta hefði yfirleitt alltaf verið skemmtilegt, fyrir utan kannski einn fund. Hann hvatti loks nýkjörna stjórn til áframhaldandi góðra verka.
Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ, sleit svo þinginu, með þakkarorðum til Hestamannafélagsins Hornfirðings fyrir lánið á aðstöðunni og góðar veitingar.
—
Íþróttamaður USÚ fyrir árið 2025 var útnefndur á þinginu, auk þess sem fimm ungir iðkendur hlutu hvatningarverðlaun USÚ. Nánar má lesa um þessar viðurkenningar í frétt sem birtist hér á síðunni innan tíðar.
Á ársþingi hafa allir sambandsaðilar málfrelsi og tillögurétt, en aðeins stjórn og fulltrúar atkvæðisrétt. Stjórnin getur boðið öðrum aðilum þingsetu er hún telur ástæðu til. Aðeins sá sem er félagi innan sambandsins er kjörgengur fulltrúi á ársþingi. Hver þingfulltrúi hefur eitt atkvæði. Allir þingfulltrúar skulu hafa kjörbréf.
Alls eiga 44 fulltrúar rétt á setu á þinginu, misjafnlega margir frá hverju félagi. Þeir sem hafa áhuga á að mæta ættu að hafa samband við stjórn síns félags.
Hér með er auglýst eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2025. Þær þurfa að berast sem allra fyrst, svo unnt sé að panta verðlaunagripi.
Einnig liggur fyrir að það vantar a.m.k. einn í stjórn. Framboð skulu berast á usu@usu.is eigi síðar en 1. apríl.
Gögn fyrir þingið (munu birtast hér þegar nær dregur):
USÚ hlaut nú nýverið styrk úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar, fyrir verkefnið Allir á æfingu. Stjórn USÚ hefur ákveðið að nýta styrkinn til að setja á laggirnar sjóð, sem ganga mun undir nafninu Stuðningssjóður USÚ. Honum er ætlað að tryggja að öll börn, 10 ára og eldri, innan aðildarfélaga USÚ, óháð áskorunum eða fötlun, hafi jafnan aðgang að skipulögðu íþróttastarfi.
Sjóðurinn kemur til með að styrkja aðildarfélögin til að greiða laun aðstoðarþjálfara sem koma inn til félags/deildar til þess að vinna sérstaklega með börnum sem þurfa aukinn stuðning til að geta tekið virkan þátt í æfingum og keppni.
Með þessu er leitast við að stuðla að félagslegri þátttöku, jöfnum tækifærum og jákvæðri reynslu allra barna innan íþróttahreyfingarinnar.
Nánar er hægt að kynna sér úthlutunarreglur nýja sjóðsins hér.
Aðildarfélög USÚ geta nú þegar sent inn umsókn með því að fylla út meðfylgjandi eyðublað og senda það svo í tölvupósti á usu@usu.is.
Á 92. ársþingi USÚ, sem fram fór á Hrollaugsstöðum 22. apríl s.l. var íþróttamaður USÚ fyrir árið 2024 heiðraður. Einnig fengu fimm ungir iðkendur hvatningarverðlaun.
Íþróttamaður USÚ 2024 er Ída Mekkín Hlynsdóttir
Ída Mekkín Hlynsdóttir, íþróttamaður USÚ 2024 og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir formaður USÚ. (mynd: SÓJ)
Ída Mekkín æfir og keppir fyrir hönd Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Undirbúningur fyrir Landsmót Hestamanna sem haldið var í Reykjavík 2024 byrjaði snemma hjá Ídu og miðaði þjálfunarferlið að því að hestur og knapi myndu toppa á réttum tíma og sýna sitt allra besta þegar á landsmótið væri komið. Þar hjálpaði til þátttaka í hæfileikamótun Landssambands Hestamanna og keppnisreynsla í Meistaradeild Líflands og æskunnar sem og ráðgjöf frá reyndu keppnisfólki og reiðkennurum.
Á landsmótinu, stærsta sviði hestamennskunnar á Íslandi, stóð Ída Mekkin uppi sem sigurvegari þegar hún sigraði gæðingaflokk unglinga. Keppnin var ótrúlega jöfn og spennan var næstum óbærileg á meðan beðið var eftir síðustu einkunnum fyrir yfirferðagang og ásetu. Þegar búið var að lesa þær upp var ljóst að Ída Mekkín Hlynsdóttir og Marín frá Lækjarbrekku voru sigurvegarar A-úrslita með einkunnina 8,96. Til gamans má geta að dómararnir fimm sem dæmdu úrslitin gáfu Ídu Mekkín og Marín 14 sinnum yfir einkunnina 9,0. Ída Mekkin er sannarlega vel að viðurkenningunni komin.
Eftirtaldir hlutu hvatningarverðlaun USÚ fyrir árið 2024:
Hlynur Ingi Finnsson
Hlynur Ingi Finnsson og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ. (mynd: SÓJ)
Hlynur Ingi er ungur körfuboltamaður hjá Sindra, sem býr yfir miklum hæfileikum og löngun til að bæta sig. Hann hefur mikinn metnað fyrir æfingunum og er að taka örugg skref í átt að því að verða atvinnumaður í körfubolta einn daginn. Vinnusemi hans og háttsemi er til fyrirmyndar fyrir unga körfuboltaiðkendur og ef hann heldur áfram á þessari braut verður framtíð hans björt á körfuboltavellinum. (Þess má til gamans geta að Hlynur er sonur Jóhönnu).
Margrét María Aradóttir
Margrét María Aradóttir og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ (mynd: SÓJ)
Margrét María Aradóttir er iðkandi hjá blakdeild Sindra. Hún hefur æft blak frá 11 ára aldri og keppti með yngri flokkunum. Í dag er hún leikmaður meistaraflokks og spilar þar með liðinu sem leikur í 1. deildinni og því sem leikur í 6. deild. Margrét er mjög áhugasöm um íþróttina. Hún kom inn í þjálfarateymi yngri flokka á síðustu önn og sinnir því starfi af alúð og metnaði. Hún er góð fyrirmynd fyrir unga blakara.
Oskar Karol Jarosz
Oskar Karol Jarosz gat ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna. Steindór Sigurjónsson, sem situr í stjórn knattspyrnudeildar Sindra, tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd, en afhenti Oskari svo viðurkenninguna sjálfur síðar um kvöldið og sendi okkur þessa mynd.
Oskar er markvörður hjá meistaraflokki Sindra í knattspyrnu. Hann hefur stigið upp sem aðalmarkvörður liðsins þrátt fyrir ungan aldur og hefur stýrt liðinu með ákveðnum hætti af öftustu línu vallarins. Hann hefur staðið sig frábærlega og er gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir liðið.
Rami Omar Zriouil
Rami Omar Zriouil og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ. (mynd: SÓJ)
Rami er ungur körfuboltamaður hjá Sindra, sem á alla athygli skilið fyrir hæfileika sína, skuldbindingu og vinnusemi. Hvaða þjálfari sem er væri ánægður með að vinna með honum og horfa á hann bæta sig á allan hátt. Hann er mjög einbeittur, æfir stíft og það er enginn vafi á því að það mun leiða hann til mikilla framfara. Hann er mjög góður liðsfélagi og fyrirmynd fyrir unga körfuboltaiðkendur.
Thelma Björg Gunnarsdóttir
Thelma Björg Gunnarsdóttir og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ. (mynd: SÓJ)
Thelma Björg er ungur knattspyrnuiðkandi hjá Sindra, sem hefur verið að stíga stór skref á knattspyrnuvellinum. Þrátt fyrir ungan aldur er hún ómissandi í liði meistaraflokks kvenna og stóð sig afar vel á síðasta tímabili. Hún hefur einnig verið valin í landsliðshópa og keppt erlendis fyrir Íslands hönd. Thelma Björg á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í knattspyrnu. Þess má til gamans geta að Thelma er dóttir Gunnars Inga, sem hlaut silfurmerki ÍSÍ á þinginu og Guðbjargar, sem kosin var varamaður í stjórn USÚ.
Stjórn USÚ óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með viðurkenningarnar.
Frá vinstri: Thelma Björg, Margrét María, Ída Mekkín, Hlynur Ingi og Rami Omar. Á myndina vantar Oskar Karol. (mynd SÓJ)
Ársþing USÚ, það 92. í röðinni, fór fram á Hrollaugsstöðum í Suðursveit, félagsheimili Umf. Vísis, þriðjudaginn 22. apríl sl. Þingið var ágætlega sótt, en alls mættu 26 fulltrúar af þeim 37 sem rétt áttu á þingsetu, þar að auki mættu reyndar fjórir varafulltrúar frá Umf. Sindra. Fulltrúar frá sjö af níu félögum innan USÚ sóttu þingið.
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ, setti þingið og bauð þingfulltrúa velkomna. Ragnheiður Högnadóttir, sem situr í stjórn UMFÍ, stýrði þinginu líkt og í fyrra og Karen Hulda Finnsdóttir ritaði þinggerð í fjarveru Jóns Guðna Sigurðssonar, ritara USÚ.
Skýrsla stjórnar kynnt. (mynd: SÓJ)
Starfsemi USÚ var með nokkuð venjubundnum hætti á árinu 2024. USÚ sendi fulltrúa á öll þau þing og fundi sem ætlast er til, t.d. vorfund UMFÍ í júní, sambandsráðsfund UMFÍ í október og formannafund ÍSÍ í nóvember. Nánar má lesa um starfið 2024 í skýrslu stjórnar í ársriti USÚ, þar sem jafnframt má kynna sér ársreikning 2024 og starfsskýrslur flestra aðildarfélaga.
Þingfulltrúar. (mynd: SÓJ)
Hafsteinn Pálsson, sem situr í stjórn ÍSÍ, flutti kveðju frá framkvæmdastjórn og starfsfólki ÍSÍ. Í ræðu sinni fjallaði hann m.a. um veðmálastarfsemi og svæðisstöðvar ÍSÍ og UMFÍ. Þá sæmdi hann Gunnar Inga Valgeirsson silfurmerki ÍSÍ fyrir langt og farsælt starf innan íþróttahreyfingarinnar innan USÚ. Eftirfarandi texti fylgdi tilnefningu Gunnars Inga:
Gunnar Ingi Valgeirsson kom inn í stjórn knattspyrnudeildar Sindra árið 1995 og hefur hann unnið óeigingjarnt starf fyrir deildina síðan. Auk þess að hafa setið í stjórn knattspyrnudeildarinnar, hefur hann sinnt sjálfboðaliðastörfum innan fleiri deilda félagsins og má því með sanni segja að að Gunnar Ingi sé Sindramaður. Hann hefur einnig verið í forystu fyrir félagið í þau skipti sem stór íþróttamót hafa verið haldin á Höfn. Þá er hann einnig með leikjahæstu mönnum Íslandsmótsins í knattspyrnu, með u.þ.b. 420 leiki eftir því sem við komumst næst.
Að lokum sæmdi Hafsteinn Jóhönnu Írisi Ingólfsdóttur, fráfarandi formann USÚ gullmerki ÍSÍ. Eftirfarandi texti fylgdi tilnefningu Jóhönnu Írisar:
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir kom inn í stjórn USÚ árið 2015. Hún sat fyrsta árið sem ritari, en tók svo við sem formaður 2016 og hefur sinnt því hlutverki síðan. Raunar hafa einungis tveir sinnt formannshlutverkinu lengur. Jóhanna var einnig formaður yngriflokkaráðs körfuknattleiksdeildar Sindra 2022-2024.
Jóhanna er drífandi og alltaf til í að hjálpa til og virðist alltaf hafa nægan tíma fyrir sjálfboðaliðastarf. Um mitt síðasta ár hóf Jóhanna störf sem svæðisfulltrúi ÍSÍ og UMFÍ á Austurlandi, svo þó hún sé nú að hverfa úr stjórn USÚ, þá heldur hún starfinu áfram á öðrum vettvangi.
Hafsteinn Pálsson, Jóhanna Íris Ingólfsdóttir og Gunnar Ingi Valgeirsson. (mynd: SÓJ)
Ragnheiður Högnadóttir, sem eins og áður segir situr í stjórn UMFÍ, flutti kveðju frá stjórn og starfsfólki UMFÍ. Hún fjallaði m.a. um bréf frá skattayfirvöldum sem hafa verið í kastljósinu að undanförnu, getraunastarfsemi og svæðisstöðvarnar líkt og Hafsteinn. Hún sagði einnig frá því að nýverið hefði stjórn UMFÍ samþykkt aðildarumsókn Íþróttabandalags Vestmannaeyja, með fyrirvara um samþykkt á ársþingi ÍBV nú í vor. Ef það gengur eftir verða öll íþróttahéruð landsins hluti af UMFÍ.
Að lokum afhenti Ragnheiður stjórn USÚ afmælisgjöf frá UMFÍ. Það var forláta skjöldur sem færa átti USÚ í tilefni að 90 ára afmæli sambandsins 2022. Hann lenti þó ofan í kassa í flutningum skrifstofu UMFÍ og fannst nýverið. Því þótti tilvalið að afhenda hann við þetta tækifæri. Því miður náðist ekki að taka nothæfa mynd af afhendingunni.
Þrjár tillögur frá stjórn USÚ lágu fyrir þinginu.
Tillaga 1 var hefðbundin tillaga um hvatningu til félaga að mæta á viðburði hjá UMFÍ og ÍSÍ.
Tillaga 2 fólst í því að skattur aðildarfélaga, skv. 6. gr. laga USÚ, verði 0 kr. árið 2024.
Tillaga 3 var svo fjárhagsáætlun fyrir árið 2025.
Allar tillögurnar voru samþykktar samhljóða.
Þó nokkrar breytingar urðu á stjórn USÚ. Áður hefur komið fram að Jóhanna Íris Ingólfsdóttir sóttist ekki eftir áframhaldandi setu sem formaður. Þá gaf Jón Guðni Sigurðsson, ritari USÚ ekki heldur kost á sér til endurkjörs. Það gerði hins vegar Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri, og var endurkjörinn. Ný inn í stjórn eru þau Bjarni Malmquist Jónsson, formaður Vísis og Margrét Kristinsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Sindra. Að þingi loknu var haldinn stuttur stjórnarfundur, þar sem ákveðið var að Bjarni yrði formaður USÚ, Margrét ritari og Sigurður áfram gjaldkeri.
Ný stjórn USÚ, Sigurður Óskar Jónsson, Bjarni Malmquist Jónsson og Margrét Kristinsdóttir (mynd: JÍI)
Þegar kom að kjöri tveggja varamanna gaf Hannes Halldórsson, Mána, kost á sér aftur, en Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Sindra, kom inn í staðinn fyrir Björgvin Hlíðar Erlendsson. Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnar Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir og Halldóra Katrín Guðmundsdóttir. Þær voru einnig kosnar í kjörnefnd fyrir næsta þing, auk Halldóru Bergljótar Jónsdóttur. Kristján Sigurður Guðnason er til vara.
Bjarni Malmquist Jónsson, formaður Vísis, sagði frá starfinu hjá Vísi, en félagið var nýlega endurvakið eftir um tveggja áratuga hlé á starfseminni. Hann sýndi einnig myndir af því sem fram undan er í uppbyggingu íþróttaaðstöðu við Hrollaugsstaði. Að þingi loknu var svo öllum þingfulltrúum boðið að skoða aðstöðu félagsins í kjallara félagsheimilisins.
Í lok þings þakkaði Jóhanna Íris þingfulltrúum fyrir gott samstarf undanfarin tíu ár. Eins og komið hefur fram hér að framan hefur hún tekið við starfi svæðisfulltrúa UMFÍ og ÍSÍ á Austurlandi, svo hún verður viðloðandi hreyfinguna áfram, þó aðeins á öðrum vettvangi. Stjórn USÚ færði svo Jóhönnu Írisi blómvönd sem örlítinn þakklætisvott fyrir samstarfið undanfarinn áratug.
Íþróttamaður USÚ fyrir árið 2024 var útnefndur á þinginu, auk þess sem fimm ungir iðkendur hlutu hvatningarverðlaun USÚ. Nánar má lesa um þessar viðurkenningar í frétt sem birtist hér á síðunni innan tíðar.
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, fráfarandi formaður og Bjarni Malmquist Jónsson, nýr formaður. Þess má til gamans geta að þau voru bæði skírð í sömu athöfn við Kálfafellsstaðarkirkju, steinsnar frá Hrollaugsstöðum. (mynd: KHF)
Á ársþingi hafa allir sambandsaðilar málfrelsi og tillögurétt, en aðeins stjórn og fulltrúar atkvæðisrétt. Stjórnin getur boðið öðrum aðilum þingsetu er hún telur ástæðu til. Aðeins sá sem er félagi innan sambandsins er kjörgengur fulltrúi á ársþingi. Hver þingfulltrúi hefur eitt atkvæði. Allir þingfulltrúar skulu hafa kjörbréf.
Alls eiga 37 fulltrúar rétt á setu á þinginu, misjafnlega margir frá hverju félagi. Þeir sem hafa áhuga á að mæta ættu að hafa samband við stjórn síns félags.
Gögn fyrir þingið (munu birtast hér þegar nær dregur):
Used to monitor number of Google Analytics server requests
10 minutes
__utmb
Used to distinguish new sessions and visits. This cookie is set when the GA.js javascript library is loaded and there is no existing __utmb cookie. The cookie is updated every time data is sent to the Google Analytics server.
30 minutes after last activity
__utmc
Used only with old Urchin versions of Google Analytics and not with GA.js. Was used to distinguish between new sessions and visits at the end of a session.
End of session (browser)
__utmz
Contains information about the traffic source or campaign that directed user to the website. The cookie is set when the GA.js javascript is loaded and updated when data is sent to the Google Anaytics server
6 months after last activity
__utmv
Contains custom information set by the web developer via the _setCustomVar method in Google Analytics. This cookie is updated every time new data is sent to the Google Analytics server.
2 years after last activity
__utmx
Used to determine whether a user is included in an A / B or Multivariate test.
18 months
_ga
ID used to identify users
2 years
_gali
Used by Google Analytics to determine which links on a page are being clicked
30 seconds
_ga_
ID used to identify users
2 years
_gid
ID used to identify users for 24 hours after last activity
24 hours
_gat
Used to monitor number of Google Analytics server requests when using Google Tag Manager
1 minute
_gac_
Contains information related to marketing campaigns of the user. These are shared with Google AdWords / Google Ads when the Google Ads and Google Analytics accounts are linked together.