Umsóknir í Styrktar- og afrekssjóð USÚ – síðari úthlutun 2025

Ungmennasambandið Úlfljótur auglýsir eftir umsóknum í styrktar- og afrekssjóð USÚ.

Merki USÚ

Umsóknum má skila í tölvupósti á usu@usu.is. Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 26. nóvember 2025.

Til að auðvelda sjóðsstjórn vinnu við afgreiðslu umsókna þurfa eftirfarandi hlutir að koma fram í umsókn:

  1. Hver sækir um.
  2. Stutt lýsing á því hvers vegna sótt er um.
  3. Upphæð sem óskað er eftir.
  4. Bankaupplýsingar (reikningsnúmer og kennitala).

Ef sótt er um vegna sérstakra verkefna, þarf auk framangreindra atriða að taka fram:

  1. Áætlaðan kostnað.
  2. Hvort umsækjandi hyggist sækjast eftir styrkjum annars staðar?

Reglur og nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér.