93. ársþing USÚ

93. ársþing USÚ verður haldið þriðjudaginn 7. apríl næstkomandi, klukkan 17:30. (Við uppfærum þessa færslu þegar staðsetning liggur fyrir.)

Um fulltrúa á ársþingi segir m.a. í lögum USÚ:

Á ársþingi hafa allir sambandsaðilar málfrelsi og tillögurétt, en aðeins stjórn og fulltrúar atkvæðisrétt. Stjórnin getur boðið öðrum aðilum þingsetu er hún telur ástæðu til. Aðeins sá sem er félagi innan sambandsins er kjörgengur fulltrúi á ársþingi. Hver þingfulltrúi hefur eitt atkvæði. Allir þingfulltrúar skulu hafa kjörbréf.

Alls eiga 44 fulltrúar rétt á setu á þinginu, misjafnlega margir frá hverju félagi.  Þeir sem hafa áhuga á að mæta ættu að hafa samband við stjórn síns félags.

Hér með er auglýst eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2025. Þær þurfa að berast sem allra fyrst, svo unnt sé að panta verðlaunagripi.

Einnig liggur fyrir að það vantar a.m.k. einn í stjórn. Framboð skulu berast á usu@usu.is eigi síðar en 1. apríl.

Gögn fyrir þingið (munu birtast hér þegar nær dregur):

93. ársþing USÚ – ársskýrsla

Tillögur til þings 2026

Ársreikningur USÚ 2025