- Á ársþingi ár hvert skal kjöri íþróttamanns ársins lýst.
- Stjórn USÚ skal bera ábyrgð á kjörinu.
- Stjórn USÚ óskar eftir tilnefningum frá aðildarfélögum nokkru áður en að kjörinu kemur.
- Heimilt er að kjósa hvern þann íþróttamann sem fullnægir öllum eftirfarandi skilyrðum:
- Er skráður félagi í aðildarfélagi USÚ.
- Keppir í íþrótt sinni fyrir hönd USÚ eða aðildarfélög þess.
- Er íslenskur ríkisborgari eða hefur búið og starfað á Íslandi um árabil.
- Íþróttamaður USÚ fær afhentan verðlaunagrip til eignar.
- Stjórn USÚ getur einnig veitt öðrum sem koma þykja til greina, hvatningarverðlaun USÚ. Þeir sem þau hljóta, fá einnig afhenta verðlaunagripi til eignar.
Þessi reglugerð var upphaflega samþykkt á 83. ársþingi USÚ, 17. mars 2016.
Síðast breytt á stjórnarfundi 22. apríl 2024.