Heiðranir á 93. ársþingi USÚ

Á 93. ársþingi USÚ, sem fram fór í Stekkhól, félagsheimili Hestamannafélagsins Hornfirðings, 7. apríl sl., var íþróttamaður USÚ fyrir árið 2025 heiðraður. Einnig fengu fimm ungir iðkendur hvatningarverðlaun.

Íþróttamaður USÚ 2025 er Þorsteinn Roy Jóhannsson

Þorsteinn gat ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna, en hann sendi okkur þessar tvær myndir af sér til birtingar hér á síðunni. Svanhvít Helga, systir Þorsteins, tók við verðlaununum fyrir hans hönd.

Eftirfarandi texti var lesinn upp við útnefninguna:

Í dag heiðrum við mann sem ákvað að hlaupa – ekki bara hraðar en flestir – heldur líka lengra og hærra… upp um fjöll og firnindi.

Hann hefur átt einstakt ár og skipað sér í fremstu röð íslenskra hlaupara. Varð annar á Íslandsmeistaramótinu í 10 km götuhlaupi, aðeins sekúndu frá sigri – og tími hans er jafnframt Íslandsmet í aldursflokki 30–34 ára. En auk þess setti hann Úlfljótsmet bæði í 5 og 10 km götuhlaupum.

Á sama tíma hefur hann sannað styrk sinn utan vegar, þar sem hann var valinn utanvegahlaupari ársins 2025 eftir sitt besta tímabil til þessa.

Sérgreinin eru fjallahlaup – og þá sérstaklega niðurhlaupið sjálft. Þar nýtur hann sín best, á fullri siglingu niður brattar fjallshlíðar. Hann kemur úr Öræfasveit og eflaust skilar sér reynslan úr fjalla-smalamennskum, að hlaupa í fjallshlíðum á eftir rollum– reynsla og seigla sem ekki er kennd í æfingaprógrömmum, en á sinn þátt í framúrskarandi árangri.

Hann var einnig valinn í landslið Íslands og keppti á heimsmeistaramóti í utanvegahlaupum sem haldið var í Canfranc á Spáni. Þar kom hann fyrstur Íslendinga í mark í 45km hlaupi um hlýðar Pýreneafjallanna eftir rúmlega 5 og hálfs klukkutíma hlaup. 

Það sem einkennir íþróttamann USÚ 2025 er ekki aðeins árangurinn, heldur viðhorfið. Hann leggur áherslu á gleði og ástríðu sem skilar stöðugri framþróun – gildi sem endurspegla kjarnann í íþróttastarfinu, eða svo ég noti orð hans sjálfs, “sá vinnur sem mest hefur gaman”.

Hann er fyrirmynd, bæði innan og utan brautar, og sannur fulltrúi þeirrar íþróttahreyfingar sem við stöndum fyrir.

Fyrir framúrskarandi árangur, dugnað og elju er Þorsteinn Roy Jóhannsson úr Ungmennafélagi Öræfa, Íþróttamaður USÚ árið 2025.

Þess má til gamans geta að þetta er í fyrsta skipti sem íþróttamaður úr Ungmennafélagi Öræfa hlýtur þessa nafnbót.

Eftirtaldir hlutu hvatningarverðlaun USÚ fyrir árið 2025

Alex Leví Gunnarsson

Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ og Alex Leví Gunnarsson (mynd: JÍI)

Alex Leví er efnilegur knattspyrnu- og körfuboltaleikmaður. Hann var valinn í úrtaksæfingar fyrir U16 KSÍ á árinu 2025 og einnig í úrtaksæfingar fyrir U15 KKÍ á árinu 2024. 

Alex er þrautseigur, metnaðarfullur og fjölhæfur vinstri fótar/handar leikmaður. Hann er lykilmaður í liði 10. flokks í körfubolta sem og sameiginlegu liði Austurlands í 3. flokki á síðasta tímabili í knattspyrnu. Hann tók einnig sínu fyrstu skref með meistaraflokki á síðasta tímabili og æfir nú grimmt með þeim fyrir komandi tímabil.

Íþróttamennska Alex Leví fer ekki framhjá neinum og verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni. 

Fanney Rut Guðmundsdóttir

Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ og Fanney Rut Guðmundsdóttir. (mynd: JÍI)

Fanney Rut er traustur og metnaðarfullur leikmaður sem hefur staðið sig vel með liði Sindra síðustu ár. Á síðasta tímabili spilaði hún 16 leiki með meistaraflokki og sýndi mikinn stöðugleika í sínum leik. Fanney getur leyst af bæði á miðju og vörn, er fylgin sér á vellinum, sterk í návígi og örugg á boltanum.

Fanney er jákvæð í hóp og leggur sitt af mörkum til liðsins. Framlag hennar átti þátt í góðum árangri Sindra á síðasta tímabili, þegar liðið náði sínum besta árangri í langan tíma með 5. sæti í 2. deild.

Jóhann Frans Ólason

Jóhann Frans gat ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna, en Guðrún Ása Jóhannsdóttir, móðir hans, tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd. Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ, er með henni á myndinni. (mynd: JÍI)

Jóhann hefur alist upp hjá UMF Sindra, þar sem hann hefur sýnt mikinn metnað, dugnað og ástríðu fyrir íþróttinni. Með elju og staðfestu hefur hann þróast jafnt og þétt sem leikmaður og verið fyrirmynd bæði innan vallar sem utan.

Nú hefur Jóhann stigið stórt skref á sinni knattspyrnuferð með því að ganga til liðs við UMF Selfoss. Það er spennandi áskorun og tækifæri sem án efa mun hjálpa honum að vaxa enn frekar, bæði sem leikmaður og einstaklingur.

Við erum stolt af því sem hann hefur áorkað hingað til og hlökkum til að fylgjast með honum ná enn lengra í framtíðinni.

Kristján Reynir Ívarsson

Kristján Reynir gat ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna, en Jóna Benný Kristjánsdóttir, móðursystir hans, tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd. Meðfylgjandi mynd var tekin af honum með viðurkenninguna daginn eftir. (mynd: ABK)

Kristján Reynir er ungur golfari hjá Golfklúbbi Hornafjarðar. Hann býr yfir miklum hæfileikum og löngun til þess að bæta sig. Hann hefur mikinn metnað fyrir golfinu og er að taka góð skref á sínum ferli og er nú þegar kominn undir 10 í forgjöf. Vinnusemi hans og háttsemi er til fyrirmyndar fyrir unga golfara og með þessu áframhaldi verður framtíð hans björt á golfvellinum.

Sóley Guðmundsdóttir

Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ, og Sóley Guðmundsdóttir. (mynd: JÍI)

Sóley er ungur og efnilegur leikmaður sem hefur þegar stigið sín fyrstu skref með meistaraflokki og spilaði sinn fyrsta leik á síðasta tímabili. Hún hefur einnig verið hluti af sameiginlegu liði Austurlands í 4. flokki kvenna, þar sem liðið stóð sig með prýði á landsvísu. 

Sóley er hröð, áræðin og hörð af sér á vellinum. Hún getur leyst margar stöður en spilar oftast sem hægri bakvörður, þar sem styrkleikar hennar nýtast vel bæði varnar- og sóknarlega.

Sóley var valin í hæfileikamótun N1 og KSÍ á árinu 2025 og er ljóst að hér er spennandi leikmaður á ferð sem á framtíðina fyrir sér.

Stjórn USÚ óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með viðurkenningarnar.

Frá vinstri, Jóna Benný Kristjánsdóttir, (móðursystir Kristjáns Reynis), Guðrún Ása Jóhannsdóttir (móðir Jóhanns Frans), Sóley Guðmundsdóttir, Fanney Rut Guðmundsdóttir, Alex Leví Gunnarsson og Svanhvít Helga Jóhannsdóttir (systir Þorsteins Roys). (mynd: JIÍ)