Umsóknir í Styrktar- og afrekssjóð USÚ – haustúthlutun 2026

Ungmennasambandið Úlfljótur auglýsir eftir umsóknum í styrktar- og afrekssjóð USÚ.

Merki USÚ

Tilgangur sjóðsins er að styrkja hornfirskt afreksfólk til æfinga og keppni og styðja verkefni sem auðga og efla ungmenna- og íþróttastarf á sambandssvæðinu.

Skilyrði fyrir styrk er að umsækjandi eigi lögheimili eða hafi að jafnaði fasta búsetu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Við styrkveitingar njóta félagar í aðildarfélögum USÚ forgangs.

Umsóknir ásamt fylgigögnum skulu berast á usu@usu.is í síðasta lagi föstudaginn 20. nóvember 2026.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í umsókn:

  1. Nafn umsækjanda.
  2. Stutt lýsing á því hvers vegna sótt er um styrk.
  3. Upphæð sem óskað er eftir.
  4. Bankaupplýsingar: reikningsnúmer og kennitala.
  5. Áætlaður kostnaður og/eða reikningar, eftir því sem við á.
  6. Upplýsingar um hvort umsækjandi sæki um styrki annars staðar vegna sama verkefnis og þá hvaðan.

Reglur og nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér.