Ársþing USÚ, það 93. í röðinni, fór fram í Stekkhól, félagsheimili Hestamannafélagsins Hornfirðings, þriðjudaginn 7. apríl sl. Þingið var ágætlega sótt, en alls mættu 34 fulltrúar af þeim 44 sem rétt áttu á þingsetu. Fulltrúar frá sjö af níu félögum innan USÚ sóttu þingið.
Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ, setti þingið og bauð þingfulltrúa velkomna. Ragnheiður Högnadóttir, sem situr í stjórn UMFÍ, stýrði þinginu líkt og í fyrra og Margrét Kristinsdóttir, ritari USÚ, ritaði þinggerð.

Starfsemi USÚ var með nokkuð venjubundnum hætti á árinu 2025. USÚ sendi fulltrúa á öll þau þing og fundi sem ætlast er til, t.d. vorfund UMFÍ í maí, íþróttaþing ÍSÍ í maí, sambandsþing UMFÍ í október og formannafund ÍSÍ í nóvember. Í tengslum við a.m.k. tvo þessa viðburði náðust góð samtöl við forsvarsmenn annarra íþróttahéraða, og nú er t.d. kominn upp talsverður áhugi á að endurvekja sýslumót sem haldin voru milli USÚ og USVS hér á árum áður. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeim hugmyndum reiðir af. Nánar má lesa um starfið 2025 í skýrslu stjórnar í ársriti USÚ, þar sem jafnframt má kynna sér ársreikning 2025 og starfsskýrslur flestra aðildarfélaga.

Enginn gestur frá ÍSÍ átti heimangengt á þingið, en Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, sendi kveðju á myndbandsformi. Þar flutti hann kveðju frá framkvæmdastjórn og starfsfólki ÍSÍ. Í ræðu sinni fjallaði hann m.a. um kraftinn sem býr á sambandssvæði USÚ, m.a. hjá Sindra og Vísi. Hann fjallaði einnig um ýmsar áskoranir varðandi æfingar og keppni, m.a. hvað varðar vegalengdir sem yfir þarf að fara. Hann fjallaði einnig um stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem ÍSÍ og UMFÍ vinna nú saman að, svo eitthvað sé nefnt.
Ragnheiður Högnadóttir, sem eins og áður segir situr í stjórn UMFÍ, flutti kveðju frá stjórn og starfsfólki UMFÍ. Hún fjallaði m.a. einnig um stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ, mikilvægi fyrirtækjanna Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna, svæðisstöðvar íþróttahéraðanna og þá sjóði sem hægt er að sækja styrki í frá UMFÍ.
Að lokum greindi Ragnheiður frá því að framkvæmdastjórn UMFÍ hefði ákveðið að heiðra Sigurð Óskar Jónsson, fráfarandi gjaldkera USÚ til 15 ára, með gullmerki UMFÍ fyrir sín störf í þágu ungmennafélagshreyfingarinnar. Eftir því sem næst verður komist er þetta í fyrsta skipti sem einhver sem starfar innan USÚ hlýtur gullmerki UMFÍ.

Fimm tillögur frá stjórn USÚ lágu fyrir þinginu.
- Tillaga 1 var hefðbundin tillaga um hvatningu til félaga að mæta á viðburði hjá UMFÍ og ÍSÍ.
- Tillaga 2 fólst í því að skattur aðildarfélaga, skv. 6. gr. laga USÚ, verði 0 kr. árið 2026.
- Tillaga 3 var smávægileg lagabreytingartillaga þess efnis að ársþing USÚ skuli haldið eigi síðar en 15. apríl ár hvert, en áður hafði verið miðað við lok marsmánaðar.
- Tillaga 4 var viðbót við eina grein í reglum um skiptingu lottótekna, þess efnis að ef félag hefur einhverra hluta vegna ekki náð að halda aðalfund sinn áður en kemur til USÚ þings, hafi það þá einn mánuð til þess eftir þing, án þess að lottótekjur skerðist, þó með þeim varnagla að félagið láti stjórn USÚ vita fyrir þingið.
- Tillaga 5 var svo fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
Allar tillögurnar voru samþykktar samhljóða og hægt að skoða uppfærð lög og lottóreglugerð hér á síðunni. Tillögurnar eins og þær komu inn á þingið má sjá í síðustu frétt hér á síðunni.
Þegar kom að kosningum, lá fyrir að breytingar yrðu á stjórn USÚ. Bjarni Malmquist Jónsson, formaður, og Margrét Kristinsdóttir, ritari, gáfu kost á sér áfram, en það gerði Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri, ekki. Í hans stað var kosin Sunna Jónsdóttir, Sindra. Að þingi loknu var haldinn stuttur stjórnarfundur, þar sem ákveðið var að Bjarni yrði áfram formaður USÚ, Margrét yrði gjaldkeri og Sunna tæki við ritarastöðunni. Því miður náðist ekki mynd af nýrri stjórn, en hún lofar að bæta úr því við tækifæri.
Engar breytingar urðu á kjörnum varamönnum. Hannes Halldórsson, Mána, og Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Sindra, gáfu kost á sér áfram og hlutu kosningu. Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnar Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir og Halldóra Katrín Guðmundsdóttir. Þær voru einnig kosnar í kjörnefnd fyrir næsta þing, auk Halldóru Bergljótar Jónsdóttur. Kristján Sigurður Guðnason er til vara.
Undir liðnum önnur mál kvaddi Bjarni Malmquist sér hljóðs, fyrst með Vísishúfuna, þar sem hann viðraði hugmyndir um að sækja um að halda Landsmót UMFÍ 50+. Þá tók hann niður húfuna og fjallaði um möguleika USÚ til að halda aftur unglingalandsmót UMFÍ, en þá umræðu þarf að taka í kringum hugmyndir Sveitarfélagsins Hornafjarðar um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Höfn.
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir og Rebekka Rán Egilsdóttir, svæðisfulltrúar á Austurlandi, sögðu frá sínum störfum og hvöttu félögin til að leita til sín ef þær gætu mögulega hjálpað þeim með eitthvað.
Að lokum þakkaði Sigurður Óskar Jónsson, fráfarandi gjaldkeri fyrir sig. Hann væri nú að hverfa úr stjórn eftir 15 ára setu. Þetta hefði yfirleitt alltaf verið skemmtilegt, fyrir utan kannski einn fund. Hann hvatti loks nýkjörna stjórn til áframhaldandi góðra verka.
Bjarni Malmquist Jónsson, formaður USÚ, sleit svo þinginu, með þakkarorðum til Hestamannafélagsins Hornfirðings fyrir lánið á aðstöðunni og góðar veitingar.
—
Íþróttamaður USÚ fyrir árið 2025 var útnefndur á þinginu, auk þess sem fimm ungir iðkendur hlutu hvatningarverðlaun USÚ. Nánar má lesa um þessar viðurkenningar í frétt sem birtist hér á síðunni innan tíðar.
