Ársþing USÚ, það 84. í röðinni fór fram í gistiheimilinu Hoffelli í gær, 16. mars. Þingið var ágætlega sótt, 29 fulltrúar af 41 mættu frá flestum félögum. Því miður mætti enginn frá Akstursíþróttafélagi Austur-Skaftafellssýslu og Skotfélagi Austur-Skaftafellssýslu.
Ýmislegt var á döfinni hjá USÚ á árinu og má þar nefna unglingalandsmót sem haldið var í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Á mótinu í Borgarnesi, var það tilkynnt að USÚ var valið til að halda 22. Unglingalandsmót UMFÍ árið 2019.
Hreyfivika UMFÍ var haldin 23.-29. maí, í fyrsta sinn að vorlagi. Boðið var upp á ýmsa viðburði í hreyfivikunni, en gott hefði verið að fá meiri mætingu á þá. Í ár verður hreyfivikan 29. maí til 4. júní og eru uppi ýmsar hugmyndir um hvað hægt sé að bjóða upp á í henni. Í ár er t.d. hugmyndin að endurvekja mótið „Í formi“ og halda það í vikunni.
USÚ sendi sína fulltrúa á þá fundi og þing sem okkur bar, eins og sambandsráðsfund og vorfund UMFÍ. Þá var fulltrúum sambandsaðila UMFÍ boðið í heimsókn til forseta Íslands á degi sjálfboðaliðans, 5. desember.
Tvær tillögur frá stjórn lágu fyrir þinginu. Fyrst má nefna hvatningu til ungmennafélaga til að fjölmenna á Landsmót UMFÍ 50+ í Hveragerði 23.-25. júní n.k. og á unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Við þessa tillögu var bætt á þinginu, og felur hún því einnig í sér hvatningu til að taka þátt í almenningsíþróttaverkefnum á vegum UMFÍ og ÍSÍ.
Þá voru samþykktar breytingar á lögum USÚ. Lög USÚ eftir breytingar má finna hér.
Stjórn USÚ gaf kost á sér til endurkjörs og var endurkjörin. Hana skipa: Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður, Kristján Örn Ebenezarson, ritari, og Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri. Á þinginu kom fram tillaga um að rétt væri að kjósa tvo varamenn stjórnar. Stungið var upp á Matthildi Ásmundardóttur, Sindra, og Ástu Steinunni Eiríksdóttur, Mána, og var það samþykkt.
Ragnheiður Högnadóttir, stjórnarmaður í UMFÍ, flutti ávarp. Hún lauk máli sínu með því að sæma Örnu Ósk Harðardóttur starfsmerki UMFÍ.
Garðar Svansson, stjórnarmaður í ÍSÍ flutti einnig ávarp. Hann lauk máli sínu með því að sæma heiðurshjónin Guðrúnu Ingólfsdóttur og Zophonías Torfason, silfurmerki ÍSÍ.
Íþróttamaður USÚ var útnefndur á þinginu auk þess sem þrír ungir iðkendur hlutu hvatningarverðlaun USÚ fyrir árið 2016. Nánar má lesa um þessar viðurkenningar í frétt sem birtast á síðunni síðar í kvöld eða á morgun.
Hér er hægt að lesa skýrslu stjórnar USÚ fyrir árið 2016. 84. ársþing USÚ ársskýrsla. Reikningar sambandsins eru í skýrslunni og einnig er þar að finna starfsskýrslur flestra aðildarfélaga. Þegar þetta er ritað vantar enn skýrslu frá Skotfélagi Austur-Skaftafellssýslu. Henni verður bætt við þegar hún berst.