Ungmennasambandið Úlfljótur hélt ársþing sitt í Pakkhúsinu á Höfn í fyrradag, 15. apríl. Rétt til setu á þinginu áttu 44 fulltrúar frá sjö félögum, auk stjórnar og gesta. Alls mættu 37 fulltrúar frá félögunum sem þykir góð mæting í ljósi þess að einungis mættu 28 fulltrúar á síðasta þing. Árið 2012 var viðburðarríkt eins og lesa má í skýrslu stjórnar hérna neðst í fréttinni. Í henni eru líka skýrslur frá öllum aðildarfélögum nema reyndar Skotfélaginu. USÚ hélt Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum um sumarið, sem þótti takast mjög vel. Það var góð æfing fyrir sumarið 2013, því eins og flestir vita heldur USÚ Unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina 2013.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ flutti ávarp á þinginu og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri mætti einnig fyrir hönd UMFÍ. Helga lauk máli sínu á því að veita Ásgrími Ingólfssyni, formanni Sindra, starfsmerki UMFÍ. Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ mætti einnig og flutti ávarp.
Á þinginu voru samþykktar nokkrar tillögur. Í fyrsta lagi að skipa nefnd sem í verða stjórn USÚ og einn fulltrúi frá hverju aðildarfélagi sem tekur þátt í Unglingalandsmótinu 2013. Henni er falið að ákveða hvernig skuli skipta mögulegum afgangi af rekstri mótsins, með þeim fyrirvara að hann verði einhver. Þá var samþykkt að fela stjórn að sækja um að fá að halda Landsmót 50+ árið 2015. Rekstrarniðurstaða USÚ var jákvæð og var meðal annars þess vegna samþykkt að keppnisgjöld keppenda USÚ á Unglingalandsmótinu 2013 verði greidd úr sjóðum USÚ. Þar með er hvatt til þess að sem flestir keppendur sjái sér fært að taka þátt.
Að lokum skal geta þess að Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, ritari USÚ, lét af störfum eftir sex ára veru í stjórn og Páll Róbert Matthíasson kom inn í staðinn. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort hann verði sjálfkrafa ritari eða að stjórnin skipti verkum með sér á annan hátt. Ólöfu Þórhöllu eru hér með færðar bestu þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu ungmennafélagshreyfingarinnar.