Í dag kom út sveitablaðið Vísir, málgagn Ungmennafélagsins Mána. Á upphafsárum sínum gaf Máni út samnefnt blað en það hefur nú komið út undanfarin fjögur ár, einu sinni á ári, rétt fyrir jól.
Í blaðinu, sem nú er í fyrsta sinn dreift um allt dreifbýli Austur-Skaftafellssýslu, er stiklað á stóru um starfið á liðnum ári. Þá er gestapistill Regínu Hreinsdóttur í blaðinu auk yfirlits yfir viðburði í Nesjum í kringum jól og áramót.
Mánamenn stefna að því að fara í árlega vetrargöngu sína milli hátíða. Yfirleitt hefur verið farið frá Mánagarði kl. 13:00, 30. desember. Stefnt er að því að halda sig við þann tíma, en ef eitthvað breytist, þá verður það auglýst á facebook síðu Mána. Aftast í blaðinu eru þrjár vísnagátur sem menn geta spreytt sig á þangað til. Svörin verða gerð opinber að lokinni göngunni.
Hægt er að lesa blaðið hér: Vísir 1 tbl 2013 (pdf skjal, 200 kb)