Þann 23. desember síðastliðinn, kom út blaðið Vísir, málgagn Ungmennafélagsins Mána. Á upphafsárum sínum gaf Máni út samnefnt blað en það hefur nú komið út undanfarin fimm ár, einu sinni á ári, rétt fyrir jól.
Í blaðinu, sem nú er í annað sinn dreift um allt dreifbýli Austur-Skaftafellssýslu, er stiklað á stóru um starfið á liðnum ári. Fjallað er um knattspyrnudeild Mána auk þess sem stutt grein um svokallaðan Knútsbyl, frá 1886, er í blaðinu. Þá er yfirlit yfir viðburði í Nesjum í kringum jól og áramót að finna í blaðinu.
Mánamenn stefna að því að fara í árlega vetrargöngu sína milli hátíða. Yfirleitt hefur verið farið frá Mánagarði kl. 13:00, 30. desember. Stefnt er að því að halda sig við þann tíma, en ef eitthvað breytist, þá verður það auglýst á facebook síðu Mána. Aftast í blaðinu eru nokkrar gátur sem menn geta spreytt sig á þangað til. Svörin verða gerð opinber að lokinni göngunni.
Hægt er að lesa blaðið hér: Vísir 2014 (pdf skjal, 186 kb)